We went for a weekend trip to Skaftafell, walk in Nupsstadarskog, to Ingolfshofdi and a boat ride on the Glacier Lagoon.
Þetta er rútan sem fór með okkur í Núpsstaðaskóg. Hún er c.a. 25 manna og er frá 1953 ef ég man rétt. Við Sonja vorum þau einu sem vorum í ferðinni þennan dag og því var nægilegt pláss fyrir okkur í rútunni.
Jói og Hannes leiðsögumaður á kletti fyrir ofan tvílitahyl.
Innst inni í Núpsstaðaskógi eftir að hafa gengið í 2-3 klst og klifrað upp 12 m bjarg í keðju komum við að þessum stað. Þetta eru tveir fossar, annar þeirra er með ferskvatni en hinn með jökulvatni og þeir renna út í sama hyl sem hefur í seinni tíð fengið nafnið Tvílitihylur og eru skilin ansi greinileg.
Þarna er parið að pós. Við erum stödd innarlega í dalnum rétt áður en haldið var til baka.
Aðeins þurfti að grafa 20 cm niður í malarfjallið til að koma niður á ís sem var ofboðslega tær og frískandi á bragðið.
Gönguskórnir sem ég keypti fyrir ferðina. Ég fékk þá á góðum afslætti og verð að segja að þeir eru mjög góðir því þetta var í fyrsta skiptið sem ég notaði þá og var í þeim í 8 tíma án þess að finna fyrir óþægindum eða þreytu í fótunum.
Sonja hugsi með jökulinn í bakgrunni.
Þarna erum við á vagni aftan í dráttarvél á leiðinni út í Ingólfshöfða. Þessi ferð tók c.a. 40 mínútur og var ansi magnað að fara þessa leið því á tímabili var eins og við værum að keyra á rúmsjó og síðan vorum við á svörtum sandi og sást ekkert annað í allar áttir.
Lagt af stað í næstu ferð ... Sigurður pabbi Einars (leiðsögumaðurinn okkar) fór aftur í land til að ná í meira fólk á meðan við skoðuðum Ingólfshöfða. Hérna er Sigurður að leggja af stað.
Ein mynd segir meira en mörg orð.
New comment: Requires approval