Við tókum okkur c.a. 6 klst. í að skoða búðirnar tvær, enda höfðum við einkabílstjóra. Venjulega skoðar fólk þetta á 3 klst. en við ákváðum að taka okkur tíma í þetta. Auschwitz I eru eldri búðirnar og síðan er Birkenau sem eru mun stærri í um kílómeters fjarlægð. Ég verð að segja að eftir að hafa skoðað búðirnar þá hefur hugurinn oft reikað um það sem þarna fór fram og ég held að maður hafi gott af því að koma þangað.
Árið 1933 lifðu um níu milljónir gyðinga í hinum 21 löndum Evrópu sem nasistar náðu yfirráðum yfir. Árið 1945 höfðu tveir af hverjum þremur verið myrtir af nasistum. 1,5 milljón börn voru drepin og þar af þúsundir fatlaðra barna. Myndin sýnir hliðið fræga inn í búðirnar.

Camera: Sony (Cybershot) |
Original size: 2560px x 1920px |
Current: 400px x 300px |