We went for a weekend trip to Skaftafell, walk in Nupsstadarskog, to Ingolfshofdi and a boat ride on the Glacier Lagoon.
Skúmur að ráðast á Einar. Ótrúlegt að sjá hvað fuglinn er óhræddur við mannfólkið.
Hérna hefur hann náð að bíta í jakkann.
"Best að öskra smá svo lýðurinn fari frá hreiðrinu mínu!"
Hérna er hann að reyna að hræða Einar með því að tylla sér á höndina á honum og breiða út vængina.
Nokkuð ánægður með þessa mynd, náðum henni á nákvæmlega réttu augnabliki.
Lundi með ströndina í bakgrunni.
Það var hægt að fara nokkuð nálagt þeim ef maður fikraði sig hægt og gerði engar snöggar hreyfingar.
Það borgaði sig að passa sig vel á bjargbrúninni því hún er öll sundurgrafin af lundanum og ef maður misstígur sig smávegis gæti maður farið í flugferð með fuglinum.
Þarna sést hvað maður komst nálagt fuglinum.
New comment: Requires approval