We went for a weekend trip to Skaftafell, walk in Nupsstadarskog, to Ingolfshofdi and a boat ride on the Glacier Lagoon.
Gallery pages: 1 2 3 4 5 >
Stoppuðum við sjoppu á leiðinni austur og gengum aðeins frá veginum. Sonja tók mynd af þessum stráum með gömlum bragga í bakgrunni.
Þessi fallegi bekkur við Seljalandsfoss var kjörinn til myndatöku.
Við fórum aðeins lengra eftir veginum frá Seljalandsfossi í áttina að Þórsmörk og þar var nokkuð magnaður foss sem erfitt er að komast að nema vaða (vitum ekki nafnið á honum). Við hliðina á honum var þetta blómabeð.
Þetta eyðibýli er á leiðinni, við klifruðum yfir rafmagnsgirðingu og tókum myndir af rústunum frá öllum mögulegum áttum.
Það var þoka á leiðinni og ansi svona drungalegt veður, sem Jóa finnst reyndar hentugasta veðrið til að taka myndir.
Ótrúlega fallegir litir á þessu svæði, og Sonja stökk út úr bílnum og elti rollur með myndavélina að vopni en Jói beið þolinmóður í bílnum á meðan.
Á Núpsstað. Þetta er yngri bróðirinn Filippus sem er 93 ára en lítur mjög unglega út. Hann og Eyjólfur heitinn, bróðir hans, eru frændur Hannesar sem fór með okkur í Núpstaðaskóg.
Gamli bíllinn þeirra bræðra. Á þessum bíl hafa þeir farið í kaupstað síðustu áratugina og hann er víst ennþá gangfær.
Hefðbundin íslensk læsing á fjárhúsunum í Núpsstað.
Gallery pages: 1 2 3 4 5 >
New comment: Requires approval